29október

....

Tveir sveitalubbar, Jói og Siggi, sáu að þeir voru komnir á endastöð í
lífinu og ákváðu að fara í skóla til að komast eitthvað áfram.
 
Þeir byrja á því að fara til námsráðgjafa og Jói fer inn fyrstur.
Námsráðgjafinn ráðleggur Jóa að taka stærðfræði, sögu og rökfræði. "Hvað er rökfræði?" spyr Jói.
Námsráðgjafinn svarar: "Leyfðu mér að koma með dæmi.
Áttu sláttuvél?" "Hana á ég," svarar Jói.
"Þá geri ég ráð fyrir; og nota
rökfræði, að þú eigir garð," svarar námsráðgjafinn. "Mjög gott," segir Jói hrifinn.
Námsráðgjafinn hélt áfram, "rökfræðin segir mér líka, að fyrst þú
átt garð, þá áttu líka hús."
Yfir sig hrifinn hrópar Jói: "FRÁBÆRT!" "Og
fyrst þú átt hús, þá má jafnvel giska á að þú eigir konu." "Hana Mæju!
Þetta er ótrúlegt!" "Og að lokum, fyrst þú átt konu, þá er rökrétt að gera ráð fyrir að þú sért gagnkynhneigður," segir námsráðgjafinn. "Það er alveg hárrétt!
Þetta er það magnaðasta sem ég hef nokkurn tíma heyrt! Ég get ekki
beðið eftir að byrja í rökfræði."
 
Að því búnu fer Jói fram þar sem Siggi bíður ennþá. "Hvaða fög tekurðu?" spyr Siggi.
"Stærðfræði, sögu og rökfræði," svarar Jói.
"Hvað í veröldinni er rökfræði?" spyr Siggi. "Leyfðu mér að koma með dæmi.
Áttu sláttuvél?" spyr Jói.
 
"Nei."
 
"Þá ertu hommi"

29. október 2008 klukkan 13:12
Íris Thelma Jónsdóttir
5 athugasemdir
23október

KREPPA :)

Par nokkurt á sjötugsaldri fór til læknis. Læknirinn spurði hvað hann gæti gert fyrir parið. Maðurinn svaraði: "Viltu horfa á okkur stunda kynlíf ?" Lækninum brá í brún en samþykkti. Þegar parið hafði lokið sér af sagði læknirinn: "Það er ekkert að kynlífinu ykkar." Og rukkaði um 4000 kr. Þetta gerðist margar vikur í röð. Parið pantaði tíma, stundaði kynlíf, borgaði lækninum og fór.
Eftir nokkur skipti spurði læknirinn: "Að hverju eru þið að reyna að komast??" Þá svaraði gamli maðurinn: "Engu, hún er gift og við getum ekki farið heim til hennar. Ég er kvæntur og við getum ekki farið heim til mín. Það kostar 8000 kr. að gista á hóteli svo ef við gerum þetta hér þá kostar það 4000 kr. og fáum við 3500 kr. til baka frá sjúkrasamlaginu Wink

23. október 2008 klukkan 20:54
Íris Thelma Jónsdóttir
2 athugasemdir
08október

Hahaha if only it was true ;)

The Treasury Department has just issued a new dollar bill to reflect the state of the economy...




An American said:

"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope and Johnny Cash."

The Icelander replied:
"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope and no Cash."
08. október 2008 klukkan 00:21
Íris Thelma Jónsdóttir
1 athugasemd
13september

eftirnöfn

Við erum vön því að börn bera nöfn föðursins sem eftirnafn, en núna er farið að bera meira á því að börn eru kennd við móður en núna um daginn heyrði ég af pari sem ákvað bara að gera bæði !!! Svo ég ákvað að kíkja inná þjóðskrá og tékka á því og viti menn þar er barnið xxxxxxx xxxx Rebekku Sturluson !! Ég skil það ef fólk er að nota t.d. Bjarnadóttir Kentish, en hitt finnst mér alveg fáránlegt, hvernig væri það ef mín dóttir væri Ásdís Katla Írisar Birgisdóttir ??? En það er bara mitt álit, svo finnst kannski öðrum þetta vera bara mjög sniðug lausn á málinu um jafnrétti - af hverju eiga börnin endilega að vera kennd bara við föðurinn - en ég er ekkert á því að það þurfi að breyta þessu endilega, auðvitað er þetta álit hvers og eins en ég ætla að halda mig við gömlu hefðina....

Varð bara aðeins að deila þessu með ykkur !

Íris Thelma
sem eingöngu er kennd við Jón föður sinn
13. september 2008 klukkan 22:15
Íris Thelma Jónsdóttir
7 athugasemdir
14ágúst

Svosem ekkert

Það helsta í fréttum er að við mæðgur erum á leiðinni til Boston í heimsókn til Rósellu systu, þann 25.ágúst og komum heim 4.sept! Verður bara æðislegt að komast aðeins út og verður bara gaman að versla aðeins á krílið þó hana vanti nú ekki föt....en ýmislegt annað er hægt að versla Hlæjandi Svo þegar við komum heim þá tekur alvaran við og fríið búið því ég þarf að fara að einbeita mér að BA ritgerðinni, en ég er alveg viss um að það eigi eftir að vera gaman því ég ætla að fjalla um meðgöngujóga og áhrif þess, á bara eftir að fá samþykki fyrir því Hlæjandi Svo ég mun hafa samband við allar tiltölulega nýorðnar mæður....
Fórum á GayPride síðustu helgi og var mín dama bara sallaróleg í látunum, var svoleiðis sléttsama þó að Páll Óskar væri að syngja og með þvílíka tónlist....svo þegar skrúðgangan var búin þá lá leiðin í afmæli til Ingu Birtu, sem varð 1.árs, algjör snúlla...en það var einhver fugl sem skeit svona skemmtilega á skerminn á bílstólnum (sem er settur í kerruna) og það lak aðeins á fötin, svo ég keypti bara nýtt dress á hana fyrir afmælið þar sem ekki gafst tími til að koma við heima!! Þetta átti víst að boða lukku svo ég lottaði en nei enginn vinningur, hef by the way ekki lottað í einhver ár!!!!
Annars líða dagarnir alltof hratt og er Ellý vinkona að fara að gifta sig núna á laugardaginn og er nóg að gera þangað til (ég þarf jú að vera fín og sæt, og undirbúa ræðu)! Er einmitt búin að vera aðeins að stússast með henni í þessu og er bara gaman að fá svona smjörþefinn af þessu!
Íbúðin er öll að koma til, smotterí eftir, Biggi er að vinna til 20 öll kvöld svo þegar hann kemur heim þá klárar hann smá og smá í einu....nema í gær þá þurfti hann að vera í fríi því við fórum í heimsókn til "ennþá" óléttu Þóru og Einars þar sem Bjarni og Edda voru líka og var þetta voða kósý, en ég vonast eftir því að hún Þóra fari bara að koma þessu barni út, alveg hræðilegt að bíða svona, ekki það að ég þekki það, en ég get rétt ímyndað mér það !! En við bíðum spennt eftir THE SMS ;) Ekki nema hún nái að blogga í miðjum hríðum eins og ég....

Jæja farin að sofa

En hér er hún Katla mín að æfa sig að sitja í sófanum hjá Ellý, ótrúlega stolt af sjálfri sér Hlæjandi 



C-ya

Íris Thelma


14. ágúst 2008 klukkan 00:15
Íris Thelma Jónsdóttir
5 athugasemdir
01ágúst

Versló

Ekki mikið í fréttum, lifi ekki beint spennandi lífi þessa dagana....þó svo að lífið sé yndislegt í alla staði. 
Hef þó frá einhverju að segja ...

Á meðan hálf þjóðin er annaðhvort úti á landi eða útí löndum þá flutti ég að heiman yfir verlsó! Jamm við Ásdís Katla búum núna í húsahverfi, í íbúð systur minnar, en hún er úti á Lanzarote og því fékk ég að nýta mér aðstæður. Nei við Biggi erum ekki hætt saman, heldur er hann á fullu að vinna við að klára íbúðina yfir helgina og því flutti ég út á meðan með krílið. Þannig að eftir helgi verður íbúðin fullkomin, þá verður ekkert gamalt inní henni, nema þá bara veggirnir, gluggarnir, útidyrahurðin og svalahurðin...Ég ætla að reyna að sannfæra Bigga um að búa þarna í meira en ár, ekki alveg að nenna að flytja aftur strax, þetta er alveg nógu stórt fyrir okkur 3! En maðurinn er með stór plön svo þetta kemur allt í ljós! Það verður ekki annað svona innflutningspartý eins og í fyrra, en ykkur er velkomið að kíkja í heimsóknHlæjandi Okkur finnst svo gaman að fá fólk í heimsókn.

Annað, þá er mágkona hans Bigga ólétt og var settur dagur 21.júlí, en hún er ekki enn búin að eiga, 11 dögum síðar, og átti að setja hana af stað í gær, það var ekki gert, svo var talað um í dag, en nei ekkert gert...núna er komið í ljós að hún verður sett af stað á mánudaginn !!! Sem þýðir að hún er sett af stað akkúrat 14 dögum eftir settan dag, sem þýðir að krílið kemur þá sennilega á 15 degi, en yfirleitt er sett af stað á 12-13 degi svo að konan eigi í síðasta lagi á 14 degi, ekki mælt með að ganga með barnið lengur en 42 vikur! En í hennar tilfelli eru það samskiptaörðugleikar sem koma í veg fyrir að hún var sett af stað fyrir helgi...og svo er ekki sett af stað um helgar....fáránlegt þetta með samskiptin, því hún er orðin þreytt á að bíða og hvað þá þegar það er búið að gefa ákveðna dagsetningu og svo bara hætt við!!! Vona bara hennar vegna að litla daman ákveði að mæta sjálf í heiminn um helgina....Þekki þetta ekki sjálf sem betur fer, þar sem mín stóð við samninginn okkar, sem sé að láta mig ekki bíða...fínt að eiga 3 dögum fyrr...Glottandi

Nóg að gera annars í ágúst...2 brúðkaup, ný íbúð, afmæli  og svo mjög líklega utanlandsferð nema hún dragist fram í september....svo auðvitað að bjóða velkomin litlu krílin sem eiga að koma í ágúst Brosandi

Farið varlega um helgina

Íris Thelma
01. ágúst 2008 klukkan 22:08
Íris Thelma Jónsdóttir
1 athugasemd
15júlí

THE BIG 25 !!!

IT'S OFFICIAL - ÉG ER ORÐIN GÖMUL

Halloween 2006 005.jpg

í DAG ER JAFNLANGT FRÁ ÞVÍ AÐ ÉG FÆDDIST OG ÞANGAÐ TIL AÐ ÉG VERÐ FIMMTUG...OH MY !!

ÉG ER VISS UM AÐ FYRSTA HRUKKAN SÉ AÐ MYNDAST Glottandi

-AFMÆLISBARNIÐ-


15. júlí 2008 klukkan 09:38
Íris Thelma Jónsdóttir
5 athugasemdir
13júlí

Gćsun

Það var sko gaman í gær, en í gær var gæsunin hennar Ellý og heppnaðist dagurinn og kvöldið bara ótrúlega vel. Því miður vissi Ellý af gæsuninni þar sem amma hennar missti það óvart út úr sér, en við gerðum bara gott úr því - hefði samt verið gaman að geta vakið hana eða bara komið henni á óvart strax. En dagurinn byrjaði á því að við Agnes pikkuðum hana upp, en hún beið samviskusamlega niðri í anddyri eftir okkur, fékk bréf sem í stóð hvað hún þyrfti að taka með sér og svona helstu atriði (þar sem hún vissi nú þegar af deginum þá mátti hún alveg gera sig til sjálf haha). Við fórum svo með hana í fjölsk. og húsdýragarðinn þar sem hún var látin fara í hringekjuna, "hjóla"bátinn og krakkafoss tækið, en við hvert tæki fékk hún eina flík hverju sinni sem hún átti svo að vera í byrjunina á deginum. Þetta var voða gaman og fyndið, sérstaklega þar sem það var ekki hræða á svæðinu fyrir utan liðið sem er að vinna þarna og hún ein í tækjunum, eða við með. Versta var að það var svoleiðis grenjandi rigning....en við gerðum bara gott úr því. Þegar hún var búin að fá átfittið sitt þá héldum við á leið uppí bústað til Jóhönnu vinkonu Ellý, en hann er bara rétt fyrir utan RVK, og þar borðuðum við saman heimabakað góðgæti (þar á meðal TYPPAMUFFINS) og planið var jafnvel að fara í nokkra útileiki en vegna veðurs var haldið sig við spjallið!! Svo brunuðum við niður í Baðhús þar sem við fórum í afró sem var mjög svo skemmtilegt og hressandi, en þegar því var lokið og við orðnar vel sveittar þá tók við afslöppun í hvíldarhreiðrinu þar sem Ellý fékk andlitsnudd og maska. Þar skáluðum við og spjölluðum og höfðum það voða kósý, gerðum okkur svo sætar og fínar þar. Eftir stutt stopp á Bæjarins Bestu til að fá smá fyllingu í magann, þá lá leiðin í nornabúðina þar sem við fengum kynningu á nornum og svo spár í bolla ásamt því að draga rúnir. Það var ýmislegt skemmtilegt sem kom út úr þessu, skv. norninni á ég vona á blómstrandi ástarlífi, rómantískri utanlandsferð og frábæru heimilislífi...svo ég bíð bara eftir að Biggi bjóði mér í þessa rómantísku ferð, nema að ég hitti mína sönnu ást þegar við Ásdís Katla förum til Boston hahaha....en mér leist vel á þessar spár, svo kom líka eitthvað með erfiða ákvörðun sem á eftir að vera rétt þó svo að hún komi illa við einhvern í leiðinni, en það þarf víst að vera....kemur í ljós hvort það standi...Rúnin sem ég dró var svo rúnin ÁS sem mér fannst nú dálítið skemmtilegt þar sem ég er nú nýbúin að skíra ÁSdís Hlæjandi en þetta er rún þekkingar. Svo fékk gæsin að auki körfu með allskonar skemmtilegu dóti, þar á meðal eitthvað sem hún getur notað á spúsa sinn ef hann er eitthvað erfiður haha! Þegar þessu var lokið þá var haldið ferðinni áfram heim til Esterar sem býr á stúdentagörðunum og við pöntuðum mat frá Thai-matstofunni þangað og gerðum bollu þar sem TYPPAKLAKAR voru í aðalhlutverki til að halda henni kaldri. Til að bæta við typpaþemað þá var drukkið úr glösum með litríkum TYPPARÖRUM. En þetta var ótrúlega skemmtilegt og skemmtum við okkur vel heima hjá Ester þangað til að gæsin ásamt Ester, Agnesi og Jóhönnu fór í bæinn og þar með lauk því kvöldi. Þetta var jú allt tekið uppá video, eða svona það helsta svo hún á minningarnar um þennan snilldardag...
Litla snót var svo bara heima með pabba sínum allan daginn á meðan mamman var að skemmta sér og gekk það svona ótrúlega vel, þau feðginin skemmtu sér víst mjög vel saman...

Annars skruppum við Biggi saman út án krílisins í fyrsta sinn á föstudaginn þegar við fórum á Óliver á tískusýninguna hjá Brynjari og Steinunni, ótrúlega fínt að komast aðeins út án hennar, þó svo að pabbinn hafi nú verið svolítið paranoid...en þetta gekk allt ótrúlega vel þar sem hún bara steinsvaf og Kalla systir sem var að passa kvartaði yfir því að hafa ekki þurft að sinna barninu neitt...þetta er soddan gullmoli sem við eigum :) Binni og Steinunn voru að gera góða hluti þetta kvöld og seldust kjólarnir ótrúlega vel, enda flottir og sniðugir, þau voru svo sæt í sér að gefa mér einn svona kjól, og valdi ég mér ótrúlega flottan fjólublán kjól. Núna er bara að læra á allar leiðirnar sem hægt er að nota hann !! 

Tveir dagar í THE BIG 25 !! Jújú mín er að verða að kellingu...veit ekki alveg hvernig ég að höndla það, ég sem er enn svo ung í anda Glottandi 

-Hafið það gott í rigningunni-

Miss old school
13. júlí 2008 klukkan 23:07
Íris Thelma Jónsdóttir
1 athugasemd
04júlí

blah

Ekki mikið í fréttum hér, maður er bara heima með prinsessuna og fer í heimsóknir eða fær heimsóknir, kíki annað slagið í einhverjar verslanir og fer jafnvel út að labba með hana. Reyndar nýttum við sólina með því að fara bara til mömmu og pabba þar sem það er voða gott að liggja þar í sólbaði, það er að segja þegar ungfrúin leyfir manni að liggja í sólbaði ! En annars er þetta alveg æðislegt í alla staði og líða dagarnir eiginlega bara alltof hratt !! Ekki alveg að meika það, hún er orðin 3 og 1/2 mánaða, líður eins og ég hafi átt hana bara í gær....Fór einmitt niður í vinnu í gær að hitta liðið og sýna þeim snúlluna, en ég hef ekki farið þangað síðan áður en ég átti og vá hvað það var skrýtið að hitta alla aftur eftir svona "langan" tíma. Var bara ótrúlega gaman að fara þangað og spjalla við liðið, tók alveg sinn tíma að taka hringinn, en það  er ekki eins og ég sé í mikilli tímaþröng, bara vera komin heim fyrir 8 á kvöldin svo snúllan geti farið að lúlla Glottandi Fór í bústað síðustu helgi til Köllu systir og það var ótrúlega næs, Ásdís Katla svaf bara allan tímann, leið greinilega mjög vel í bústaðnum, gott að vita af því ....
Styttist í afmælið mitt, the BIG 25 !! Oh my hvað ég er orðin gömul....en ég veit ekki hvort ég nenni að halda annað partý eins og í fyrra...haha...sé til hvað ég geri...verður maður ekki að gera eitthvað í tilefni dagsins ???
Svo er það bara ættarmót þann 19 júlí, það verður stuð, við ætlum reyndar ekki að gista, en allaveganna að vera allan daginn og fram eftir kvöldi, en þar verður einn frændi sem er rúmum mánuði eldri en Ásdís Katla, verður gaman að sjá þau saman Hlæjandi

En jæja þar sem hún er sofnuð þá ætla ég að skella mér í bað...

-Íris Thelma-
sem hefur ekkert að segja ....

04. júlí 2008 klukkan 21:34
Íris Thelma Jónsdóttir
1 athugasemd
03júní

Ásdís Katla

Ungfrúin er komin með nafn

Ásdís Katla og eru bæði nöfnin út í loftið, en við erum mjög ánægð með nafnið og hvað það fer henni vel. En ég get alveg viðurkennt það að það er skrýtið að fara allt í einu að nota nafnið - ekki tala lengur um hana bara sem litlu, snúllu eða fleira í þeim dúr. Skírnin gekk ótrúlega vel og fékk hún ótrúlega mikið af fallegum  gjöfum Brosandi

-Íris Thelma-
03. júní 2008 klukkan 18:17
Íris Thelma Jónsdóttir
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Íris Thelma Jónsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Nemi í Ensku í Háskóla Íslands
  • Hjúskaparstađa: Á föstu

Auglýsing

Me, myself & Iris

Íris Thelma heiti ég og er 25.ára Reykjavíkurmćr. Er í ensku og fjölmiđlafrćđi í HÍ og stefni ađ ţví ađ útskrifast nćsta sumar, er svo heima međ litlu snúlluna eins og er en fer ađ vinna aftur í janúar hjá Vodafone!
If you know me, add me - iristh182@hotmail.com

Könnun

Átt ţú von á barni á ţessu ári?

Ţađ styttist í hana

Snúllurnar

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur