blah
Ekki mikið í fréttum hér, maður er bara heima með prinsessuna og fer í heimsóknir eða fær heimsóknir, kíki annað slagið í einhverjar verslanir og fer jafnvel út að labba með hana. Reyndar nýttum við sólina með því að fara bara til mömmu og pabba þar sem það er voða gott að liggja þar í sólbaði, það er að segja þegar ungfrúin leyfir manni að liggja í sólbaði ! En annars er þetta alveg æðislegt í alla staði og líða dagarnir eiginlega bara alltof hratt !! Ekki alveg að meika það, hún er orðin 3 og 1/2 mánaða, líður eins og ég hafi átt hana bara í gær....Fór einmitt niður í vinnu í gær að hitta liðið og sýna þeim snúlluna, en ég hef ekki farið þangað síðan áður en ég átti og vá hvað það var skrýtið að hitta alla aftur eftir svona "langan" tíma. Var bara ótrúlega gaman að fara þangað og spjalla við liðið, tók alveg sinn tíma að taka hringinn, en það er ekki eins og ég sé í mikilli tímaþröng, bara vera komin heim fyrir 8 á kvöldin svo snúllan geti farið að lúlla
Fór í bústað síðustu helgi til Köllu systir og það var ótrúlega næs, Ásdís Katla svaf bara allan tímann, leið greinilega mjög vel í bústaðnum, gott að vita af því ....
Styttist í afmælið mitt, the BIG 25 !! Oh my hvað ég er orðin gömul....en ég veit ekki hvort ég nenni að halda annað partý eins og í fyrra...haha...sé til hvað ég geri...verður maður ekki að gera eitthvað í tilefni dagsins ???
Svo er það bara ættarmót þann 19 júlí, það verður stuð, við ætlum reyndar ekki að gista, en allaveganna að vera allan daginn og fram eftir kvöldi, en þar verður einn frændi sem er rúmum mánuði eldri en Ásdís Katla, verður gaman að sjá þau saman ![]()
En jæja þar sem hún er sofnuð þá ætla ég að skella mér í bað...
-Íris Thelma-
sem hefur ekkert að segja ....
Íris Thelma Jónsdóttir

Hey btw ég er búin með Grey's ;) Tók ekki langan tíma! Kem og skila v tækifæri :) Og ef það verður eitthvað mega veður í næstu viku, er þá ekki málið að planta sér kannski niður útivið einhvers staðar og sleikja sólina? :)