Gæsun
Það var sko gaman í gær, en í gær var gæsunin hennar Ellý og heppnaðist dagurinn og kvöldið bara ótrúlega vel. Því miður vissi Ellý af gæsuninni þar sem amma hennar missti það óvart út úr sér, en við gerðum bara gott úr því - hefði samt verið gaman að geta vakið hana eða bara komið henni á óvart strax. En dagurinn byrjaði á því að við Agnes pikkuðum hana upp, en hún beið samviskusamlega niðri í anddyri eftir okkur, fékk bréf sem í stóð hvað hún þyrfti að taka með sér og svona helstu atriði (þar sem hún vissi nú þegar af deginum þá mátti hún alveg gera sig til sjálf haha). Við fórum svo með hana í fjölsk. og húsdýragarðinn þar sem hún var látin fara í hringekjuna, "hjóla"bátinn og krakkafoss tækið, en við hvert tæki fékk hún eina flík hverju sinni sem hún átti svo að vera í byrjunina á deginum. Þetta var voða gaman og fyndið, sérstaklega þar sem það var ekki hræða á svæðinu fyrir utan liðið sem er að vinna þarna og hún ein í tækjunum, eða við með. Versta var að það var svoleiðis grenjandi rigning....en við gerðum bara gott úr því. Þegar hún var búin að fá átfittið sitt þá héldum við á leið uppí bústað til Jóhönnu vinkonu Ellý, en hann er bara rétt fyrir utan RVK, og þar borðuðum við saman heimabakað góðgæti (þar á meðal TYPPAMUFFINS) og planið var jafnvel að fara í nokkra útileiki en vegna veðurs var haldið sig við spjallið!! Svo brunuðum við niður í Baðhús þar sem við fórum í afró sem var mjög svo skemmtilegt og hressandi, en þegar því var lokið og við orðnar vel sveittar þá tók við afslöppun í hvíldarhreiðrinu þar sem Ellý fékk andlitsnudd og maska. Þar skáluðum við og spjölluðum og höfðum það voða kósý, gerðum okkur svo sætar og fínar þar. Eftir stutt stopp á Bæjarins Bestu til að fá smá fyllingu í magann, þá lá leiðin í nornabúðina þar sem við fengum kynningu á nornum og svo spár í bolla ásamt því að draga rúnir. Það var ýmislegt skemmtilegt sem kom út úr þessu, skv. norninni á ég vona á blómstrandi ástarlífi, rómantískri utanlandsferð og frábæru heimilislífi...svo ég bíð bara eftir að Biggi bjóði mér í þessa rómantísku ferð, nema að ég hitti mína sönnu ást þegar við Ásdís Katla förum til Boston hahaha....en mér leist vel á þessar spár, svo kom líka eitthvað með erfiða ákvörðun sem á eftir að vera rétt þó svo að hún komi illa við einhvern í leiðinni, en það þarf víst að vera....kemur í ljós hvort það standi...Rúnin sem ég dró var svo rúnin ÁS sem mér fannst nú dálítið skemmtilegt þar sem ég er nú nýbúin að skíra ÁSdís
en þetta er rún þekkingar. Svo fékk gæsin að auki körfu með allskonar skemmtilegu dóti, þar á meðal eitthvað sem hún getur notað á spúsa sinn ef hann er eitthvað erfiður haha! Þegar þessu var lokið þá var haldið ferðinni áfram heim til Esterar sem býr á stúdentagörðunum og við pöntuðum mat frá Thai-matstofunni þangað og gerðum bollu þar sem TYPPAKLAKAR voru í aðalhlutverki til að halda henni kaldri. Til að bæta við typpaþemað þá var drukkið úr glösum með litríkum TYPPARÖRUM. En þetta var ótrúlega skemmtilegt og skemmtum við okkur vel heima hjá Ester þangað til að gæsin ásamt Ester, Agnesi og Jóhönnu fór í bæinn og þar með lauk því kvöldi. Þetta var jú allt tekið uppá video, eða svona það helsta svo hún á minningarnar um þennan snilldardag...
Litla snót var svo bara heima með pabba sínum allan daginn á meðan mamman var að skemmta sér og gekk það svona ótrúlega vel, þau feðginin skemmtu sér víst mjög vel saman...
Annars skruppum við Biggi saman út án krílisins í fyrsta sinn á föstudaginn þegar við fórum á Óliver á tískusýninguna hjá Brynjari og Steinunni, ótrúlega fínt að komast aðeins út án hennar, þó svo að pabbinn hafi nú verið svolítið paranoid...en þetta gekk allt ótrúlega vel þar sem hún bara steinsvaf og Kalla systir sem var að passa kvartaði yfir því að hafa ekki þurft að sinna barninu neitt...þetta er soddan gullmoli sem við eigum :) Binni og Steinunn voru að gera góða hluti þetta kvöld og seldust kjólarnir ótrúlega vel, enda flottir og sniðugir, þau voru svo sæt í sér að gefa mér einn svona kjól, og valdi ég mér ótrúlega flottan fjólublán kjól. Núna er bara að læra á allar leiðirnar sem hægt er að nota hann !!
Tveir dagar í THE BIG 25 !! Jújú mín er að verða að kellingu...veit ekki alveg hvernig ég að höndla það, ég sem er enn svo ung í anda
-Hafið það gott í rigningunni-
Miss old school

13. júlí 2008 klukkan 23:07
Íris Thelma Jónsdóttir
Íris Thelma Jónsdóttir