Nenni ekki ađ blogga
Æðislegur dagur í dag þar sem ég er komin með vinnuna í Ogvodafone og mun því vera þar í allt sumar og í hlutastarfi í haust
Þokkaleg byrjendalaun og jafnaðarkaupið þarna er betra en yfirvinnan hjá Ítalíu svo ég mun hætta þar eftir 19.apríl. Á eftir að sakna ýmissa hluta þar en fegin að fara að prófa eitthvað nýtt og hætta í kvöldvinnu, komin með nett leið á að vera að vinna til 12 á kvöldin. Ég byrja þarna í enda maí. En prófunum lýkur 15.maí. Get ekki beðið.
Annars komu nokkrir vel hressir flugmenn á Ítalíu í gær og var bara mjög gaman að þjóna þeim, húmor en samt kurteisir. Þeir munu dvelja hér á landi næstu 6 mánuði þar sem þeir eru að vinna hjá Iceland Express og einn þeirra spurði af hverju ég kæmi ekki bara til þeirra að vinna
Tveir af þeim eru frá einhverri eyju í Karabíska hafinu og sögðu mér að endilega kíkja í heimsókn, hefði nú ekkert á móti því að skella mér til einhverra af þessu eyjum þarna, en að kíkja til þeirra er annað mál. Annars þá spurðu þeir mig að svolitlu sem mér finnst svo fáránlegt en fyndið. Þeir spurðu hvort ég og Fabio, annar eigandinn og pizzubakari, værum skyld því það væri svipur með okkur
En hann er fimmtugur Ítali og ég 22.ára Íslendingur og ljóshærð í þokkabót !! Gaman að þessu. Svo vildu þeir meina að ég líktist einhverri sem þeir þekktu og vorum mikið að velta sér uppúr því, og auðvitað var þá tekin mynd af mér !! Aldrei tek ég myndir af þeim sem þjónar mér þegar ég er í útlöndum hehe....En svona erum við greinilega æðislega við íslensku stelpurnar.
Við Biggi kíktum á íbúð í gær, en núna erum við að skoða á fullu þar sem við förum von bráðar að festa kaup á einu stykki. Við erum að leita eftir ljótri íbúð sem þarf að laga, ég meina ég er með smið, held að það komi ekkert annað til greina en að hann vilji gera íbúðina upp eftir sínu höfði, ég fæ bara herbergi þarna
Segi svona, ég fæ nú alveg að segja mitt álit, vona ég
En það verður bara gaman að geta breytt til og haft hana eins og maður sjálfur vill. En við erum aðallega að leitast eftir í Grafarvogi eða jafnvel Selásnum í Árbæ, en þá er ég aðallega að tala um blokkirnar með útsýni yfir Rauðavatn. Erum núna einmitt bara að bíða eftir greiðslumatinu...Allir að *krossafingur* fyrir okkur hehe. Væri til í að flytja í sumar en það getur vel verið að við bíðum með það þangað til í ágúst svo við getum safnað meiri pening í sumar. Það styttist allaveganna í þetta !!! Can't Wait ![]()
Jæja, ætla að fara að gera eitthvað að viti, en er að fara að vinna í kvöld og annað kvöld. Svo er það bara Laugar á föstudaginn með staffinu en við ætlum að tjilla í baðstofunni þar og fáum að borða eitthvað gott einnig. Svo er það djamm um kvöldið og frítt áfengi handa þessum fyllibyttum ![]()
Símamærin kveður
-Íris Thelma-
Fór á Curtis Adams í gær og þetta var ekkert smá flott, var mjög sátt með þessa sýningu. Bigga fannst hún líka flott nema að hans mati mátti vera meira um töfrabrögð og minna um dans.... Fór í viðtal nr.2 hjá Ogvodafone áðan og vonast ég svo eftir því að fá þetta starf. Ef það gengur eftir þá mun ég hætta alveg á Ítalíu því ég mun vinna þarna með skóla. Kannski komin tími á að breyta aðeins til. Komin með svolítið leið á að vinna alltaf til 12 á kvöldin !! En líst mjög vel á Ogvodafone og fæ svar fyrir páska svo allir að *krossafingur* fyrir mig Annars voða lítið í fréttum, læra í dag og svo vinna í kvöld. Verð að vinna næstu 4 kvöld og kannski tek ég laugarDAGINN fyrir hana Sóley svo hún þurfi nú ekki að vinna þunn í 13 tíma. En ég bauð henni að vinna frá 11-18 svo hún geti nú aðeins sofið þynnkuna úr sér, en það er nefnilega staffadjamm núna á föstudaginn, eins og er alltaf á föstudaginn LANGA á hverju ári. En svo getur vel verið að sú vakt verði bara mín síðasta á Ítalíu Ætla að fara að fá mér fleiri súkkulaðibitakökur og svo að læra.... Ciao Bella -Íris Thelma- | ||||
Blessuð þið 3 sem lesið þetta ;)
Er bara að prófa þetta uppá fönnið, gaman að þessu ![]()
-Íris Thelma-
Skrifa meira seinna....
